Jæja, þá er þetta allt að smella saman. Skipurlagið sko. Fyrir svona ferðalag þarf maður að skipurleggja sig vel... ekki of vel en hæfilega vel til að taka ekki rangar ákvarðanir í fljótfærni. Alveg eins og ef maður væri að fara í ferðalag út á land. Maður ákveður áfangastað. Svo fær maður sér kort og finnur út leiðina sem maður vill fara og ef það eru margar leiðir verður maður að velja. Þetta er nauðsynlegt til að lenda ekki í því að taka ranga beygju og enda á stað sem maður vill ekki vera á.Það er að sjálfsögðu líka hægt að hafa ferðalagið tilviljunarkennt og lenda á óvæntum stöðum... en það er ekki það sem ég er að gera núna. Ég á mér markmið. Og ég sé þetta markmið fyrir mér. Og ég mun ná þessu markmiði innan skamms 
Ég ætla að byrja á morgun, mánudag. Úff... eins og er hlakkar mig ekkert rosalega til. Ég er nefninlega algjör matarfíkill. Ég borða þegar mér líður illa. Ég borða þegar ég er einmana... þá helst súkkulaði. Ég held að það sé satt sem sagt er um súkkulaði. Ég fæ sjúklega þörf fyrir súkkulaði þegar ég er einmana! Ég borða þegar mér leiðist og ég hef ekkert að gera. Ég borða þegar mér leiðist og ég hef helling að gera en nenni því ekki. Ég borða þegar ég veit ekki hvað ég á að gera, ef mig langar ekki til að gera neitt sérstakt. Ég borða af vana... fyrir framan sjónvarpið, við tölvuna, þegar ég les... Og ég á erfitt með að gera hluti án þess að borða í leiðinni... eins og að horfa á sjónvarpið, vera í tölvunni, lesa bók... alltaf nartandi í eitthvað óhollt. Þetta er eins konar vítahringur... að geta ekki borðað nema hafa eitthvað að gera á meðan og geta ekki gert neitt nema narta í eitthvað með! Og út úr þessu þarf ég að komast... því þetta sem ég er endalaust borðandi er eitthvað allt annað en hollt! Svo nei... mig hlakkar ekki til að byrja!
En ég ætla, það er engin spurning. Ég hef nánast enga sjálfstjórn. Ef mig langar í eitthvað fæ ég mér það... svo framarlega að ég eigi pening til að kaupa það. Og það er einmitt stór aukaverkun af þessum frábæra breytta lífstíl... ég mun eignast meiri pening! Ekki kannski eignast hann heldur mun ég ekki eyða honum í vitlaeysu og þar af leiðandi eiga hann. Svo þetta er sparnaður í leiðinni 
Á morgnana ætla ég að fá mér morgunmat sem til skiptis verður AB-mjólk með heimatilbúnu múslí og gróft fjölkorna brauð með áleggi/osti og grænmeti/ávöxtum. Og taka lýsi. Drekka svo mikið vatn yfir daginn. Um tvö glös með hverri máltíð. Hvert glas er um tvöhundruð og fimmtíu millilítrar svo yfir daginn mun ég þá drekka tvo og hálfan til þrjá lítra af vatni... sem er mjög gott. Meira ef ég hreyfi mig mikið, drekk þá vatn með hreyfingunni.
Í miðmorgunmat ætla ég að borða ýmist ávöxt, hrökkbrauð með osti og grænmeti eða gróft fjölkorna brauð með áleggi/osti og grænmeti/ávöxtum.
Í hádeginu ætla ég svo að borða kjöt, fisk, pasta og hvað það sem fólk hefur venjulega í kvöldmat. Þá eru komnar tvær til þrjár þurrar kolvetnismáltíðir og allar fyrri part dagsins 
Í síðdegismat verður hollt snakk... sem eru ýmsir ávextir (ekki banani, hann verður fyrri hlutan) og grænmeti, ber og hnetur. Ætli þetta verði ekki "nammitími" dagsins. Við erum gerð til að sækjast í sætindi... til þess að frummennirnir myndu leita sér ávaxta og berja og þannig fá ýmis nauðsynleg næringarefni. Svo við þurfum sætuefnin okkar á hvejum degi... ber og ávexi og þess háttar
Gæti líka verið gott að búa sér til jammý sjeik úr til dæmis skyri og berjum.
Kvöldmaturinn verður svo ýmist egg og grænmeti, allskonar salöt; til dæmis með kjúkling, skyr og ávextir, grænmetissúpa og þess háttar léttmeti. Ef þið eigið góðar uppskriftir af léttum máltíðum... endilega deilið. Og líka ef þið hafið fleiri gómsætar hugmyndir í máltíðarnar mínar 
Ég ætla að reyna að borða ekkert eftir kvöldmat en ef ég verð alveg að farast þá ætla ég að fá mér ávöxt (gott að frysta til dæmis melónu eða vínber og fá sér "ís") eða grænmetissnakk. Einstaka sinnum búa til æðislega ídýfu fyrir grænmetið
Gott ráð er að bursta tennurnar fljótlega eftir kvöldmat eða bara ef manni fer að langa í eitthvað... þá eru minni líkur á að maður fái sér eitthvað. Tyggjó virkar örugglega líka.
Ég ætla að gera ítarlegan matseðil, gera svo innkaupalista eftir honum, versla nákvæmlega eftir innkaupalistanum og eiga enga freistandi óhollustu heima. Fara svo bara sjaldan að versla, kannski einu sinni í viku og þurfa ekkert að "skreppa út í búð"... við vitum nefninlega hvernig það endar, er það ekki?!? Já, og auðvitað að fara SÖDD að versla.
Ýmis smáráð:
Nota litla matardiska, þá finnst mér ég vera að fá meiri mat.
Borða rólega... gefa heilanum tíma til að meta hvort hann sé orðinn saddur. Ef þú hefur ekki tamið þér áður að borða rólega er gott ráð að forskera ekki matinn og leggja hnífapörin niður á meðan þú tyggur 
Krydda matinn vel... ég veit ekki alveg af hverju en það er eins og maður verið fyrr saddur af sterkum mat og borði þess vegna minna.
Eiga niðurskorna ávexti og grænmeti tilbúið inn í ísskáp ef skyndileg nartlöngun lætur á sér bera (ætla að gera það fyrir börnin mín, gott fyrir þau þegar þau koma heim úr skólanum)
Hafa tilbúnar uppástungur um eitthvað að gera ef mér fer að leiðast (er sko í fæðingarorlofi svo ég hef nægan tíma til að láta mér leiðast)!
Sofa nóg... sem er ekkert smáráð heldur bara mjög nauðsynlegt.
Endilega segið mér frá ykkar smáráðum 